Útilega Fálkaskáta
Kæru foreldrar og Fálkaskátar Helgina 14.-16. október ætla Fálkaskátar (10-12 ára) í útilegu. Um er að ræða sameiginlega útilegu Azteka. Ferðinni er heitið í í skálann Vífilsbúð.
Við ætlum að fara á einkabílum og því óskum við eftir foreldrum sem geta annaðhvort keyrt eða sótt í ferðina. Það er skemmtilegt tækifæri fyrir foreldra að aka skátunum, þannig kynnast þeir starfinu betur.
Í boði kvöldkaffi á föstudags- og laugardagskvöldið. Skátarnir koma með annað nesti. Um er að ræða c.a. 6 máltíðir auk millibita (2 morgunm., 2 hádegism., 1 síðdegism. og 1 kvöldm.). Mikilvægt er að koma með hollt og gott nesti en leyfilegt er að koma með sætindi í hófi.
Brottför: Mæting í skátaheimilið kl. 19:00 á föstudeginum.
Heimkoma: Áætlað er að leggja af stað frá Vífilsbúð kl. 12:00 og því er áætluð heimkoma í skátaheimilið kl. 12:30 á sunnudeginum.
Útbúnaðarlisti:
- Ullarnærföt eða sambærilegt
- 2 pör sokkar t.d. ull eða thermo
- Nærföt til skiptanna
- 2 stk peysur
- 2 pör buxur (ekki gallabuxur)
- Vettlingar
- 1 stk. flíspeysa eða ullarpeysa
- Trefill
- Húfa eða lambúshetta
- Vatns- og vindþolin hlífðarföt
- Gönguskór
- Inniskór
- Náttföt
- Skátabúningur (Það sem skátarnir eiga)
- Svefnpoki og koddi
- Bakpoki
- Vasaljós (athuga áður hvort í lagi - auka batterí)
- Tannbursti og tannkrem
- Þvottastykki og lítið handklæði
- Hárbusti / greiða
- Myndavél (á eigin ábyrgð, ath. enginn önnur raftæki leyfileg)
- Lesefni
- Vatnsflaska (t.d. 0,5 ltr - gosflaska án goss)
- Lyf (ef þörf er á slíku - þarf þá að láta foringja vita)
- Hnífur ef maður vill
Gott er ef foreldrar geta látið starfsmann vita tímanlega ef þeir geta ekið skátunum. Endilega hafið samband við foringja eða starfsmann ef spurningar vakna.
Með von um skemmtileg ferð.
Daníel (starfsmaður), skfhamar(at)simnet.is, 897-3088
Ágúst (sveitaforingi Azteka í Logafold), s: 849-2440