Fréttir   Sveitir   Útilífsskóli   Myndir   Félagið   Roverway   Innskrá 
 Fréttir  
 
Ný heimasíða, 19.10.2008
Árbúar eru komnir með nýja heimasíðu.
Hún er: http://arbuar.123.is/

Síðan er mun aðgengilegri og þægilegri að eiga við.
Þangað munu allar upplýsingar fara inn framvegis.

Hægt er að skrá sig í Útilfsskólann á www.utilifsskoli.is

Kveðja
Árbúar


Meira

 
 
Þriðja vika í Útilífsskólanum, 27.06.2008
Sæl öll

Í dag er föstudagur, síðasti dagur viku nr. 3 í Útilífsskólanum, og æltum við að fara að hjóla í dag.

Þessa vikuna erum við búin að fara í hristingarleiki, sund í Breiðholtslaugina, Húsdýra og Fjölskyldugarðinn og í gær fórum við í óvissuferð í Hjálparsveit Skáta Reykjavík þar sem við fengum að skoða alla bílana, prufa sjúkrabörurnar þeirra og klifra. Eftir það var síðan haldið aftur upp í Árbúaheimili þar sem beið krakkanna sápurennibraut.

Við erum búin að fá rosalega gott veður alla vikuna og er það búið að gera námskeiðið okkar ennþá skemmtilegra.

Þökkum kærlega fyrir vikuna
Árbúar


Meira

 
Útilífsnámskeiðin hafin, 09.06.2008
Í dag hófst útilífsnámskeiðin hjá Árbúum. 18 krakkar eru mættir á fyrsta námskeiðið hjá okkur og byrjuðu þau í morgun að mála boli handa sér og lögðu stað í paradísardal klukkan 11 þar sem þau munu fara í leiki og hafa gaman í góða veðrinu.

Meira
 
Útilífsskóli Árbúa Sumarnámskeið, 30.05.2008
Útilífsskóli Árbúar. Sumarnámskeið

Skráning er hafin á hin frábæru sumarnámskeið Útilífsskóla Árbúa.
Það er tilvalið að eyða hluta af sumrinu á skemmtilegu útivistarnámskeið ásamt fullt af öðrum hressum krökkum á aldrinum 7-11 árs.
Skráning og nánari upplýsingar eru hér og á www.utilifsskoli.is


Meira
 
Eldri fréttir
Á döfinni / dagatal