Forsíða
 Sveitir
 Útilífsskóli
 Myndir
 Félagið
 Tenglar
 Innskráning








Greiðsla félagsgjalda haustið 2011, 21.11.2011
Við minnum á greiðslu félagsgjalda vegna haust 2011, gjaldið er kr:10.000
Hægt er að leggja beint inn á reikning okkar nr: 525-26-400060,  kt:421280-0379 eða greiða með Frístundakorti.  
Meira
 
Fundartími Dróttskáta hefur verið ákveðinn, 19.09.2011
Í vetur hittast Dróttskátar á miðvikudögum milli klukkan 20:00 og 21:00. Fyrsti fundur vetrarins er nk. miðvikudag, 21.september.  Sjáumst hress og kát!
Meira
 
Skátastarf Garðbúa að hefjast, 05.09.2011
Við hófum skátastarfið hjá Garðbúum með pompi og prakt síðastliðin laugardag 3. september þar sem við grilluðum pylsur, klifruðum í klifurvegg og spjölluðum saman um komandi starf í vetur.
 
Ekki missa af frábæru skátastarfi hjá Garðbúum í vetur og kíktu til okkar. Fundir drekaskáta (7 - 9 ára) verða á miðvikudögum kl. 17:30 til 18:30, fálkaskátar (10 - 12 ára) verða á fimmtudögum kl. 18:30 - 19:30 og nú munum við einnig verða með dróttskátasveit en fundartími hennar verður ákveðin innan tíðar. 
Meira
 
Garðbúar fá kynningu á nýju skátaaðferðinni, 25.08.2011
Félagstjórn, flokksforingjar og foreldrar fengu kynningu á nýju skátaaðferðinni sem nú á að innleiða hjá skátafélögum landsins. Segja má að með útgáfu nýrra handbóka fyrir flokksforingja, bóka fyrir skátana og innleiðingu nýju skátaaðferðarinnar sé verið að auka gæði skátastarfsins enn frekar. Garðbúar hafa ákveðið að hefja notkun á nýju aðferðinni sem fyrst og byrjaðir að undirbúa sig fyrir krefjandi og spennandi verkefni í uppbygingu á félaginu.
Meira
 
Útilífsskóli , 26.04.2011
Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Útilífsskóla sumarsins. Smellið á Útilífsskóli til að fá upplýsingar um tíma og verð.
Meira
 
Eldri fréttir

Hefur þú áhuga á að vera skáti?


Nei







Skátafélagið Garðbúar - Hólmgarði 34 - 108 Reykjavík - sími 588 8099 - gardbuar.skatar@simnet.is