| Starfiđ ađ hefjast ađ nýju 16.10.2011 |
| Nú eru Hafernir komnir úr heldur löngu sumarfríi og hefst starfið hjá okkur mánudaginn 31. október kl. 17.30. Við verðum áfram með fundi í Miðbergi og verður í vetur boðið uppá starf fyrir fálkaskáta (fædda ´99-´01) og dróttskáta (fædda ´96-´98). Hægt er að skrá sig með því að smella á gula hnappinn sem birtist hér vinstra megin á síðunni. Við auglýsum eftir foringja fyrir drekaskáta (fædda ´02-´04) skátareynsla ekki skilyrði, setjið ykkur í samband við stjórn félagsins ef þið hafið áhuga. Allar nánari upplýsingar er að finna hér á síðunni og einnig tökum við við fyrirspurnum á netfangið okkar hafernir@skatar.is Sjáumst hress í vetur Með skátakveðju Stjórnin |
| Meira |
| |
| Annarlok 10.06.2011 |
 | Drekaskátasveit Hafarna tók um síðustu helgi þátt í stórskemmtilegu drekaskátamóti á Úlfljótsvatni. Hópurinn skemmti sér mjög vel við ýmis skemmtileg skátaverkefni. Mótið, sem gekk mjög vel, markaði lokin á starfinu í vetur. Við þökkum fyrir samstarfið og óskum ykkur öllum góðs sumars! Hlökkum til að sjá ykkur öll í haust :-) |
| Meira |
| |
| Ađalafundur Hafarna 26.04.2011 |
 | Aðalfundur Hafarna fer fram fimmtudaginn 28. apríl næstkomandi í aðstöðu Hafarna í Miðbergi (önnur hæð). Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Fundurinn hefst kl. 20 og er öllum opinn. |
| Meira |
| |
| Innilega og greiđsla félagsgjalda 19.02.2011 |
 | Skátafélagið Hafernir stendur fyrir innilegu fyrri dreka- og fákaskáta um komandi helgi. Upplýsingar um viðburðinn hafa verið sendar í tölvupósti til foreldra. Athugið að ganga þarf frá skráningu þátttakenda á viðburðinn fyrir n.k. fimmtudagskvöld, skráning fer fram á slóðinni http://skatar.is/vidburdaskraning, þar þarf að slá inni kennitölu þátttakenda og velja viðburðinn "Innilega Hafarna" Athugið að nú er einnig komið að greiðslu félagsgjalda fyrir starfsárið 2010-2011. Leiðbeiningar hafa verið senda með tölvupóst en þær eru einnig aðgengilegar hér. |
| Meira |
| |
| Vel heppnađur skemmtidagur! 23.01.2011 |
 | Hafernir héldu vel heppnaðan skemmtidag í nærumhverfi sínu í Efra Breiðholti laugardaginn 22. janúar. Hressir skátar mættu til leiks ásamt foreldrum og vinum. Hópnum var svo skipt upp í minni einingar sem þeyttust um hverfið í æsispennandi ratleik í umsjón félagsstjórnar og foringjar. Hópurinn söng m.a. í nærliggjandi sjoppu, rifjaði upp örnefni í nágrenninu og æfði sig í undirstöðuatriðum í skyndihjálp auk þess að lesa í landakort. Dagurinn endaði svo með kökubakstri í skátaheimilinu í Miðbergi - ekki amalegur endapunktur það! Skemmtidagurinn var mjög skemmtilegur og héldu allir heim á leið með bros á vor, endurnærðir eftir útiveru í hópi góðra vina. Skátalíf er útilíf! |
| Meira |
| |
| Eldri fréttir |