Ármann Ingi sérlegur hirðljósmyndari ferðarinnar hefur sett töluvert af myndum inn á netið sem þið hafið án efa gaman af að skoða: Ármann
Góðir hlutir taka enda, 13.08.2007
við erum öll á heimleið, 12.08.2007
Í gær komu heim liðlega 400 skátar eftir ævintýralega ferð á Alheimsmót skáta á Englandi. Þrátt fyrir að einungis séu liðnir 5 dagar frá því að mótinu lauk að þá er búið að hreinsa allt mótssvæðið og skila því til eigenda Hylands Park, ótrúlegt að 40 þúsund manna byggð hverfi svo fljótt.
Skátarnir koma heim glaðir
Í þessum töluðum orðum er allur hópurinn kominn inná flugvöll og bíður eftir að komast í loftið. Neyðarsími ferðarinnar er orðinn óvirkur en hægt er að ná í Braga Björnsson aðal fararstjóra í síma 8630088.
Skátar vinna að betri heim, 07.08.2007
Síðasti dagurinn, 07.08.2007
21 alheimsmóti skáta lýkur á miðnætti. 42000 skátar frá 158 þjóðum hafa þá dvalið saman í 12 daga í friði og kærleik undir þema mótsins einn heimur eitt heit (e. one world one promise). Það er sama hvar i heiminum skátar eru þeir fara allir með sama skátaheitið og eftir sömu skátalögunum. Skilaboð skáta til heimsbyggðarinnar eru þau að við getum öll lagt okkar að mörkum til að skilja við þennan heim örlítið betri en þegar við komum í hann.
Á síðustu 12 dögum
Síðasti dagurinn á Hylands Park er runninn upp fyrir flesta. Allir þátttakendur ásamt meginn þorra mótsstjórnar halda burta af mótssvæðinu í fyrramálið í heimagistingu. Eftir sitja um 30 íslendingar sem aðstoða við niðurtekt mótsins.
Í dag eru allir að taka niður sem flest í tjaldbúðunum, sameina í tjöld til að tryggja að ná sem flestu þurru á morgun, ef það skyldi rigna í dag.
Í kvöld er loka athöfnin sem hefst kl. 21:00 og stendur til 23:00.