Við erum að fara á Alheimsmót skáta í Svíþjóð.
Þar verða rúmlega 38.000 skátar frá öllum heimshornum.
Þar af eru tæplega 300 íslenskir skátar.
Það eru fleiri lönd á alheimsmóti en á Ólympíuleikunum.
| Heimferð 11.08.2011 | Jæja, allir sem að eru að koma heim frá Kaupmannahöfn eru komnir um borð í vélina og við það að leggja af stað heim eftir vel heppnaða ferð! Aftur á móti er seinkun á vél Icelandair frá Stokkhólmi ég læt vita þegarað vélin er á leið í loftið. |  | | Meira | | | Grenjandi rigning, final countdown og geggjuð stemning 06.08.2011 | Europe, flugeldasýning, konungshróp og grenjandi rigning einkenndi mótsslitin á heimsmóti skáta í Svíþjóð. Það var mögnuð stemningin sem myndaðist á 360° sviðinu sem mótshaldarar settu sérstaklega upp fyrir slitin. Sænski konungurinn hélt ræðu og afhenti Japönsku skátunum mótsfánana fyrir næsta heimsmót en það verður haldið þar árið 2015. Mikla athygli vakti þó þegar Karl Gústav lét 39000 skáta taka eldflaugahrópið fræga. Stórhljómsveitin Europe steig á svið og tók Final Countdown og í lokin á því byrjaði ein flottasta flugeldasýning sem sögur fara af. Ekki hættu þó drunurnar eftir að flugeldasýningu lauk því við tóku grátur veðurguðanna yfir því að að mótinu væri lokið. Flestir íslensku hóparnir voru búnir að taka niður tjöldin sín í dag til að hafa þau þurr og eru þau öll komin í skjól fyrir rigningunni og hafa það mjög gott. | | Meira | | | Niðurrif 06.08.2011 | Í dag eru skátarnir á fullu að taka niður allar byggingar, tjöld og fleira sem þeir hafa verið að nota síðustu vikuna. Ekki er laust við það að örlítill doði liggi yfir mótssvæðinu og blendnar tilfinningar brjótast um á síðasta degi mótsins. Margir hafa eignast góða vini sem erfitt er að skilja við og flestir eru á því að þeir væru alveg eins til í það að vera á mótinu í 10 daga í viðbót. Ferðalagið í heimagistinguna hefst svo á morgun og hefst þá næsti kafli í ferðalaginu okkar og munum við vonandi fá skemmtilegar ferðasögur úr því | | Meira | | | Síðustu dagarnir 05.08.2011 | Síðustu 10 daga hafa um 280 íslenskir skátar notið tilverunnar á alheimsmóti skáta í Svíþjóð og verið í hópi 39.000 skáta á einu fjölþjóðlegasta móti sem haldið er í heiminum. Á örfáum dögum breyttist smáþorpið Rinkaby úr því að vera 700 manna þorp í stórborg á íslenska mælikvarðanum. Skátarnir hafa upplifað eitthvað sem finnst hvergi annars staðar í veröldinni. Á þessum 10 dögum hefur dagskráin verið fjölbreytt og allir fundið sér eitthvað við sitt hæfi og má þá helst nefna Camp in Camp dagskránna, skáta Tivolí, ísklifur og skautasvell í 25 stiga hita. En nú er þessu öllu að verða lokið og það eina sem eftir er að gera er að ganga frá svæðinu og slíta mótinu. Á morgun munu flestir byrja að pakka saman tjaldbúðunum sínum og koma sameiginlegum búnaði aftur í gámana og svo verða mótsslitin um kvöldið. Á sunnudag munu svo allir hóparnir fara af mótssvæðinu og leggja af stað í heimagistinguna sem verður svo allt annar kafli í ferðasögunni. | | Meira | | | Cultural Festival day 04.08.2011 | Í dag var ,,Cultural Festival day" sem er hátíðardagur mótsins þar sem allar sveitir á mótinu kynna menningu síns lands, mat, dansa og fleira. Dagurinn gekk frábærlega og þótti íslenska kjötsúpan vera hin besta súpa og kláraðist hún mun fyrr en ætlað var. Ekki dóu þó sveitirnar okkar ráðalausar og gerðu sumar þeirra pönnukökur, aðrar sungu íslenska söngva og ein sveit fór með gesti og gangadi í skemmtilega íslenska skátaleiki. Mikla athygli vakti jarðskjálfta hermirinn úr Hveragerði og máttu skátarnir hafa sig alla frammi að slá á hann með sleggjunum fyrir allan þenna fjölda erlendra skáta sem prufuð herminn. Í kvöld var svo hápunktur dagsins en þar komu saman 48.400 manns við stóra sviðið á bráðskemmtilegri sýningu og tónleikum en gestgjöfunum sem héldu úti Camp in Camp dagskránni var boðið að taka þátt.  | | Meira | | | |
|
|
|
|
|