ROVERWAY 2009
Roverway 2009 er alþjóðlegur skátaviðburður sem er fyrst og fremst ætlaður fyrir skáta (drengi og stúlkur) frá Evrópu á aldrinum 16-22 ára (fædd 1987-1993). Mótið er eftir sem áður opið fyrir skáta alls staðar að úr heiminum á þessum aldri.
Mótið er Evrópskur skátaviðburður og stendur BÍS fyrir Roverway 2009 að þessu sinni undir leiðsögn Evrópusamtaka skáta WOSM og WAGGGS. Fyrirkomulag mótsins er þannig að fyrst er unnið í minni hópum sem dvelja í grunnbúðum víða um land í fjóra daga og svo hittast allir á Úlfljótsvatni í fjóra daga eftir það. Mótið fer að mestu eða öllu leyti fram á ensku þar sem von er á miklum fjölda erlendra þátttakenda víðsvegar að frá Evrópu og vonandi víðar að úr heiminum. Þetta er í þriðja sinn sem Roverway er haldið og sóttu fyrri mótin um það bil 4-5000 skátar frá á fjórða tug landa.
Íslenskir skátar á þessu aldursbili (fæddir 1987-1993) eru hvattir til að taka þátt í þessu alþjóðlega skátamóti sem er þó haldið hér heima og þurfa þeir því ekki að þessu sinni að hoppa upp í flugvél til að taka þátt. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá skáta sem sóttu Alheimsmótið í Englandi 2007 að endurnýja vinskapinn og stemminguna sem þar náðist. Okkur er mikilvægt að þátttaka íslenskra skáta á Roverway verði glæsileg því það er besta leiðin til að kynna menningu okkar og skátastarf fyrir gestum okkar og ekki síst til að skemmta okkur og eignast nýja vini.