Á döfinni
 
Skoðanakönnun
Ert þú dugleg(ur) að æfa þig heima á milli æfinga?


Nei
Þarf þessi ekki
Já, æfi badminton á milli æfinga
 
 


HeimUm kórinnSöngfólkiðMyndasafnEnglish
 
Jólaskemmtun Skátakórsins, 03.12.2009
Árleg jólaskemmtun Skátakórsins fer að þessu sinni fram sunnudaginn 13. desember kl. 15:00 í Árbúaheimilinu, Hraunbæ 123 (Gengið inn að sunnaverðu).

Fyrri hluti skemmtunarinnar verður í formi tónleika þar sem kórinn mun flytja nokkur vel valin jólalög frá ýmsum tímum og úr ýmsum áttum undir stjórn Skarphéðins Þórs Hjartarsonar kórstjóra.

Að tónleikum loknum göngum við saman í kringum jólatréð með tilheyrandi söng og fjöri og frést hefur að jólasveinninn ætli að mæta með einhvern glaðning í pokahorninu.

Aðgangseyrir kr. 1.000,- fyrir fullorðna. Frítt fyrir börn

Allir velkomnir.

Jólakort Skátakórsins verða til sölu á staðnum fyrir þá sem eiga eftir að græja þau mál – 10 glæsileg kort með umslögum á þúsundkall!

 
Til baka