Forsíđa
 Fréttir
 Félagiđ
 Vetrarstarf
 Sumarstarf
 Myndaalbúm
 Tenglar
 Innskráning
 Vefpóstur






Fundur á nýju ári, 13.01.2012
Við viljum byrja á því að óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir gömlu árinu og hlakka til að starfa með ykkur á nýju skátaári.

 

Fundartímar verða þeir sömu og eru fyrstu fundir nýs árs eftirfarandi:

 

Drekaskátasveitin Kentárar (8. ára) er þriðjudagurinn 17. janúar kl. 17:00

Drekaskátasveitin Mínótárar (9. ára) er þriðjudagurinn 17. janúar kl. 18:15

Fálkaskátasveitin Faróar (10 - 12 ára strákar) er fimmtudagurinn 19. janúar kl. 17:00

Fálkaskátasveitin Gyðjur (10 - 12 ára stelpur) er miðvikudagurinn 18. janúar kl. 17:00

Dróttskátasveitin Æsir (13 - 15 ára) er mánudaginn 16. janúar

Rekkaskátasveitin Dímon er miðvikudagurinn 18. janúar

 

Við voum að þetta komi sér ekki illa fyrir neinn og sjáumst hress í næstu viku. En skátafundir verða í SKÁTAKOTI.

 

Skátakveðja,

stjórn og foringjar skátafélagsins Svana.

Meira
 
Félagsútilegan, 15.11.2011
Svo virðist sem einhverjir foreldrar hafi ekki fengið tölvupóst frá okkur um félagsútileguna. Þá er ráð að athuga hvort búið var að skrá barnið í skátana fyrir þetta ár eða hvort pósturinn sé í ruslhólfinu.

  

Ef það er ekki vandamálið má nálgast skjölin hér undir meira.

Meira
 
Félagsútilega Svana og foreldrafundur. , 09.11.2011
Búið er að opna fyrir skráningu í félagsútilegunna, en skráningin fer fram rafrænt á www.skatar.is/vidburdaskraning

 

Einnig minnum við á foreldrafundinn fimmtudaginn 10. nóvember kl. 20 í sal Álftanesskóla.

Finna má útbúnaðarlista til hliðsjónar hér á síðunni undir Vetrarstarf, Skráning, Útbúnaðarlisti.

Meira
 
Innilega og vígsla hjá Fálkaskátasveitinni Gyđjum. , 29.10.2011
Föstudaginn 28. október héldu Gyðjur innilegu í skátakoti, en þar voru saman komnar 24 hressar stelpur sem ætlaðu að hafa gaman í Skátakoti. Við byrjuðum á því að koma okkur fyrir, svo héldum við skátavígslu, þar sem við vígðum bæði inn nýja skáta og eins voru nokkrar stelpur að koma upp í fálkaskáta úr drekaskátunum. En í heildina voru það 18 stelpur sem við buðum velkomnar í Gyðjusveitina.

Það voru svo kátar en misþreyttar stelpur sem fóru svo heim á laugardagsmorgninum.

Meira
 
Fundartímar í vetur., 12.10.2011
Fundartímar verða í vetur:

Mánudagar:    kl: 20:00-21:30 Dróttskátar Æsir (fædd 1996-1998),

Þriðjudagar:    kl: 17-18 Drekaskátar Kentárar (börn fædd 2003),

                          kl: 18:15-19:15 Drekaskátar Mínótárar (börn fædd 2002),

Miðvikudagar  kl: 17-18:30 Fálkaskátar Gyðjur (stelpur fæddar 1999-2001),

                          kl: 20-21:30 Rekkaskátar Dímon (fædd 1993-1995),

Fimmdudagar kl: 14-18:30 Fálkaskátar Faróar (strákar fæddir 1999-2001),

Meira
 
Eldri fréttir

Skátafélagiđ Svanir - Breiđumýri - 225 Bessastađahreppur - 5556877 - 8956877