Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Verðskrá 
  English 

AF HVERJU EKKI BEINA ÓVISSUFERÐINNI Á ÚLFLJÓTSVATN?

Síðustu árin hafa fjölmargir hópar komið í "óvissuferð" að Úlfljótsvatni. Ýmist hefur þetta verið liður í lengri ferð og þá verið að sækja í margvíslega afþreyingu sem við getum boðið upp á staðnum, eða stopp til að nærast. Þetta hafa þá verið ferðir skipulagðar af öðrum. Það hefur síðan farið vaxandi að við höfum tekið að okkur að skipuleggja óvissuferðina frá A-Ö. Þetta fer auðvitað eftir eðli hópsins sem er að fara í ferðina, aldirsskiptingunni, lengd ferðarinnar, og hvaða hugmyndir fólk sem undirbýr ferðina er með. En verðin okkar eru samkeppnisfær og hér er allt til alls.

Við höfum því skipulagt dagskrá fyrir hópa sem aðeins stoppa hjá okkur í 2-3 klst upp í hópa sem eru bara hér allan daginn og enda sumir með góðri kvöldmáltíð og gleði í Strýtunni hjá okkur. Stundum hefur verið farinn hringur með stoppi á öðrum stöðum fyrir eða eftir, kannski Draugasafnið sótt heim eða Adrenalíngarðurinn - möguleikarnir eru fjölmargir.

En við fullyrðum að enginn einn staður getur boðið upp á þá dagskrármöguleika sem við á Úlfljótsvatni getum boðið uppá. Það má fara í bátasiglingar, klifra í stærsta klifurturni landsins, fara í Mýrarbolta (leðjuslagur), fara í vatnsbyssubardaga, fara í margvíslega hópeflis og kappleiki, það má slá upp balli, ekkert mál að útbúa flotta matarveislu í skemmtilegu umhverfi og áfram má halda. Alla vega hefur ekki einn einast hópur sem hefur sótt okkur heim orðið fyrir vonbrigðum.

Skoðið Afþreyingarkaflann hér á síðuni og sjáið hvaða möguleikar eru í stöðunni og hafið svo samband við okkur ulfljotsvatn@skatar.is









Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is