Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Verðskrá 
  English 
 
Nýtt sumarbúðanámskeið hafið!, 06.07.2010
Í gær var að venju labbað upp að krossinum sem stendur í fjallshlíðinni á Úlfljótsfjalli. Frá krossinum er gott útsýni yfir Úlfljótsvatn og svæðið í kring. Krakkarnir lærðu að þekkja nöfnin á t.d. fjöllunum í kring, húsunum og eyjunum á vatninu. Þegar heim var komið fórum við í hópeflis- og nafnaleiki fram að hádegismat.
Þegar við höfðum komið upp tjöldum var aðeins byrjað að dropa á okkur en við létum það ekki stoppa okkur og settum upp hengirúmin og þrífótana líka.
Allir krakkarnir eignuðust svo leynivin sem þau ætla að vera dugleg að senda póst og flottar gjafir til í gegnum leynivina-póstkassann. Það verður spennandi að fá að vita hver á hvaða leynivin í enda vikunnar.
Um kvöldið var svo kvöldvaka þar sem við sungum ýmis lög, bæði skátalög og önnur lög sem flestir kannast við. Sumir flokkarnir settu á svið skemmtiatriði sem gaman var að fylgjast með og hlægja með. Fjótlega eftir kvöldkaffi sofnuðu allir, enda mikið spennufall eftir fyrsta daginn...

Í dag var svo skellt sér á báta eftir morgunmat, þar sem sólin lét svo vel að kíkja á okkur í smá stund. Krakkarnir prófuðu hjólabáta og kanóa eða hoppa ofaní vatnið og bursla um og hafa gaman. Blaut upp fyrir haus röltum við upp í hús til að þess að skipta yfir í þurrt og fá sér góðann hádegismat fyrir Úllaleika.
Úllaleikar voru haldnir og keppt var í allskyns íþróttum og leikjum allt frá vítakeppni yfir í breiðasta brosið eða sífellt mas.
Eftir kaffitíma var hægt að föndra með leður, spýtur og brennipenna eða að fara út í klifurturninn okkar og reyna að spreyta sig á kifurveggnum og að síga niður hinumegin.
Í kvöld verður svo vonandi veður fyrir útikvöldvöku þar sem við kveikjum eld og grillum sykurpúða...

Kveðjur frá öllum á Úlfljótsvatni!



 
Til baka





















Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is