 |
|
|
|
| | | | | Söluleikur og fjör!, 08.07.2010 | Miðvikudagur var vindasamur en hlýr og við tókum morguninn í póstaleik þar sem við undirbjuggum hike ferðina. Við lærðum skyndihjálp, skoðuðum gönguleiðina á korti og settum nesti og auka föt í bakpokana okkar. Eftir góðann hádegisverð var ekki eftir neinu að bíða svo að flokkarnir drifu sig af stað í gönguferðina. Krakkarnir skiptust á að halda á nestinu og kortinu sem við skoðum reglulega til þess að fara ekki vitlausa leið. Við stoppuðum á leiðinni til þess að gera verkefni; svara spurningum, gera skemmtiatriði og flokkssöng eða segja hvort öðru sögur. Við nutum þess að borða nestið okkar úti í náttúrunni og spjalla saman. Þegar heim kom var gott að skella sér í sturtu til þess að þvo af okkur ferðarykið. Um kvöldið var svo kvöldvaka þar sem flokkarnir sungu lögin og sýndu skemmtiatriðin sem þau höfðu samið á leiðinni í göngunni.Í dag fórum við svo aftur í klifurturninn, margir sem spreyttu sig og gerðu betur en seinast. Eftir hádegi var svo tími þar sem krakkarnir fengu að æfa sig fyrir Úllavisjón, sem er einskonar hæfileika/júróvisjónkeppni. Krakkarnir syngja, dansa eða leika undir þekktum lögum og keppast um að vinna sér inn stjörnu í flokka keppninni. Söluleikurinn var svo eftir kaffitíma og mikið fjör að hlaupa um að selja, skipta og kaupa vörur til þess að safna sér inn sem flestum peningum. Auðvitað þurftu krakkarnir að passa sig á illmenninu og ruplaranum sem var á stjá tilbúinn að stökkva til þeirra og stela af þeim peningum... Í kvöld verður svo Úllavisjón haldið og svo verður haldið á kvöldvöku með krökkunum úr leikjanámskeiðunum úr bænum sem eru í útilegu hér á Úlfjótsvatni, það verður vonandi kraftmikil og skemmtileg kvöldvaka!Allir hlakka til að fara í vatnasafarí á morgun og koma svo heim til að hitta mömmu og pabba. Kveðjum í bili frá sumarbúðunum á Úlfjótsvatni!
|  | | | | Til baka | |
|
|
|
|
|
|
|
|
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is
|
|