 |
|
|
|
| | | | | Síðasta ævintýranámskeið sumarsins hafið, 12.07.2010 | | En það gekk fljótt yfir. Allir gengu saman upp að krossi þar sem foringjarnir sögðu þeim frá staðarheitum, því þar er hægt að sjá vel yfir allt svæðið okkar hér á Úlfljótsvatni. Þegar komið var til bak fóru krakkarnir í hópeflisleiki svo hægt væri að hrissta hópinn betur saman.Eftir pulsuhádegismat var farið að tjalda og súrra. Súrra er sérstök bindiaðferð sem notuð er þegar gerðir eru þrí- og fjórfótar. Allir flokkarnir fá að búa sér til þrífóta og strengja síðan net yfir og þar geta þau sofið í á næturnar undir berum himni. Einnig hafa þau kost á því að sofa í tjöldum eða bara inni í skála. Þrátt fyrir margar gerðir af veðri sem veðurguðirnir hafa leyft okkur að smakka á í dag, eru krakkarnir búin vera mjög hress og kát og mörg hver eru búin að eignast marga nýja vini. Við reynum að birta nýjar myndir á hverjum degi, svo endilega verið dugleg að fylgjast með heima. Bless í bili
|  | | | | Til baka | |
|
|
|
|
|
|
|
|
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is
|
|