Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Fyrir hverja 
  Lýsing og stefnumál 
  Myndir 
  Nágrenni 
  Rekstraraðilar 
  Saga staðarinns 
  Skálarnir 
  Staðsetning 
  Styrktaraðilar 
  Upplýsingar 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Verðskrá 
  English 

FYRIR HVERJA ER STAÐURINN

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni er í eigu skátahreyfingarinnar.  Þar eru haldnir margvíslegir viðburðir á vegum skáta s.s. námskeiðahald, ráðstefnur, æfingar, oþh.  Skátar fara með útilegur á Úlfljótsvatn stórar sem smáar, í skálana yfir veturinn og í tjaldútilegur á sumrin.  Þá halda þeir reglulega skátamót á svæðinu og var síðasta Landsmót skáta haldið þar 2005 með um 4000 þátttakendum.  Staðurinn er með alla aðstöðu til að þjónusta þennan fjölda.  Skátar hafa byggt útilífsmiðstöðina upp með það í huga að unnt sé að halda þar fjölmenn útilífsmót (tjaldmót) fyrir þúsundir þátttakenda með nauðsynlegum tjaldflötum, hreinlætisaðstöðu og margvíslegri afþreyingu.

Útilífsmiðstöðin býður almenningi einnig að njóta aðstöðunnar og er staðurinn leigður út til margvíslegra viðburða fyrir smærri og stærri hópa. Jafnframt er boðið upp á margvíslega þjónustu til hópa s.s. að skipuleggja ýmsa dagskrá, annast mat fyrir hópa, ferðir ofl. Gjarnan er um að ´æða Óvissuferðir, hvataferðir, fjölskyldudaga, starfsmannadaga, hvataferðir og áfram má telja - allt fer þetta vel á Úlfljótsvatni.  Þannig hafa fjölmörg fyrirtæki komið árlega í hvata, hópeflis - og skemmtiferðir á Úlfljótsvatn.  Já það eru allir velkomnir!

TJALDSVÆÐIÐ ER OPIÐ ALMENNINGI!

Við fullyrðum að tjaldsvæðið á Úlfljótsvatni sé eitt það al fullkomnasta tjaldsvæði landsins og hefur það náð ***** fimm stjörnu markinu.  Tjaldsvæðið er opið almenningi allt sumarið og er ávallt unnt að finna tjaldflöt fyrir fjölskylduna, eða jafnvel alla ættina og sé hópurinn ekki þeim mun fjölmennari þar ekki að boða koma sína - bara mæta á svæðið eins og á öðrum tjaldsvæðum landsins.  Og á staðnum er yfrum nóg við að vera fyrir unga sem aldna.

Sett hefur verið upp nettengd vídióvél þannig að fólk getur aðeins séð inn á svæðið og sést hér lítillega í þak Strýtunnar á vinstrihönd og nýja Þjónustumiðstöðin á hægri hönd en þetta er auðvitað bara lítið brot af svæðinu: Er óvirk sem stendur.

Verið hjartanlega velkomin á Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni!









Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is