DAGSKRÁ SKÓLABÚÐA
Skólabúðir á Úlfljótsvatni eiga sér orðið vel á annan áratuga sögu. Hinar hefðbundnu Skólabúðir eru tveggja daga búðir og gist ER yfir eina nótt. Þetta form virðist henta skólum afskaplega vel og hafa búðirnar verið afskaplega vel sóttar af skólum í Reykjavík, nágranna sveitarfélögunum og víðar að. Vinsælasta tímabilið er frá áramótum og út maí mánuð en haustmánuðirnir eiga nú líka vaxandi vinsældum að fagna.
Að neðan má sjá hvernig tímatafla hefðbundinna Skólabúða lítur út. Ýmsir dagskrárliðir eru þó háðir veðri og er þá brugðist við því í samráði við kennara. Einnig er unnt að sérsmíða dagskrá eftir þöfum skóla ef óskað er eftir og síðan hefur farið vaxandi dagsheimsóknir einstakra aldurshópa og talsvert er af slíkum vorferðum skólahópa, og er þá sérstök dagskrá útbúin fyrir þá hverju sinni. Vinsamlegast leitið frekari upplýsinga með að senda okkur lýsingu á hverju þið leitið eftir: ulfljotsvatn@skatar.is
Fyrri dagur:
kl. 10:00 Komið að Úlfljótsvatni
kl. 11:00 Hópeflisleikir
kl. 12:30 Hádegisverður
kl. 14:00 Hópeflisleikir
kl. 15:30 Eftirmiðdagshressing
kl. 17:00 Lífsleiknistund
kl. 18:00 Frjáls tími
kl. 18:30 Kvöldverður
kl. 20:00 Kvöldvaka - Kvöldhressing
kl. 23:00 Kyrrð
Seinni dagur:kl. 09:00 Morgunverður
kl. 10:00 Gönguferð og hópeflisleikir.
Kl. 11:30 Lífsleiknistund.
kl. 12:30 Hádegisverður
kl. 13:30 Frágangur og tiltekt
kl. 14:00 Ferð til Nesjavalla
kl. 16:00 Áætluð koma að skóla