Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Almennar upplýsingar 
  Gjaldskrá tjaldsvæðis 
  Gæðaflokkun tjaldsvæða á Íslandi 
  Reglur tjaldsvæðis 
  Tjaldsvæði 
  Yfirlitsmynd 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Verðskrá 
  English 

Almennar upplýsingar

Nú höfum við náð takmarki okkar að koma tjaldsvæðinu á Úlfljótsvatni í hóp 5 stjörnu tjaldsvæða ***** !

Almennar upplýsingar.
Tjaldsvæðið er opið almenningi allt sumarið og er fyrst og fremst hugsað fyrir fjölskyldufólk. Háreysti og ölvun á svæðinu er alls ekki liðin.  Ætlast er til að kyrrð og ró sé á svæðinu frá kl. 23.30 - 08.00.

Tjaldverðir áskilja sér fullan rétt til að vísa fólki af svæðinu sé ekki farið eftir þessu.

Tjaldsvæðið er almennt opið almenningi frá 15. maí til 1. október.

Tjaldsvæði

Gistigjald fyrir fullorðna 
1200 kr.
Gistigjald fyrir börn 12 -17 ára
600 kr
Þvottavél / Þurrkari
300 kr.

Stærri hópar og fyrirtæki.
Mögulegt er að panta með fyrirvara ýmsa sérþjónustu fyrir stærri hópa.  Sem dæmi má nefna takmarkaða svefnaðstöðu í skálum, hressilega grillmáltíð, sérstaka kvöldvökustjórn, skipulag og umsjón með dagskrá - hópeflisleiki og leigu á samkomutjöldum með viðeigandi búnaði. Einnig er unnt að leigja til sérstakra viðburða fjölnotahús sem er á svæðinu er nefnist Strýtan og er 300 fermetra stórt og hafa þar farið fram margvíslegir viðburðir allt frá brúðkaupsveislum í ættarmóts-veislur.

Hafið samband og fáið nánari upplýsingar og hugmyndir!

Góður húsakostur, frábær tjaldsvæði, margskonar dagskrártilboð og þjónusta gerir Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni að kjörnum vettvangi fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa sem vilja eiga saman góðar stundir í frábæru umhverfi.  Úlfljótsvatn er tilvalinn staður fyrir ferðir fyrirtækjahópa, ættarmót og smærri og stærri samkomur af hvers kyns tagi hvort sem um er að ræða helgarferð, dagsferð, eða óvissuferð og hafa hundruðir hópar sótt staðinn heim síðustu ár.

Samkomuaðstaða.
Á staðnum er 300 fermetra fjölnotahús, sem kallast Strýtan, sem hentar afar vel undir hvers kyns samkomur. Strýtan hýsir allt að 250 matargesti og er auk þess tilvalið til dansleikja og annarra skemmtana. Strýtan er tilvalin fyrir skemmtanir, árshátíðir, óvissuferðir fyrirtækja, ættarmót sem og brúðkaupsveislur - þetta er alls ekki hefðbundinn veislusalur en þegar hafa t.d. verið haldnar í Strýtunni fjórar brúðkaupsveislur auk margvíslegra viðburði.  Þá hafa nokkrar ferðaskrifstofur bókað viðkomu á staðnum og nýtt sér Strýtuna sem matar-viðkomustað. Möguleikarnir eru margvíslegir - bara nota hugmyndaflugið.

Undraland við Úlfljótsvatn
Skátar hafa átt sitt athvarf og „undraland" að Úlfljótsvatni allt frá árinu 1941 og allar götur síðan hafa börn á öllum aldri notið þar lífsins í nánu sambandi við auðuga náttúru staðarins.

Sumarstarf fyrir börn og útilegur skátahópa einkenndu starfsemina fyrstu áratugina, samhliða markvissri uppbyggingu svæðisins.

Í dag er starfsemi árið um kring að Úlfljótsvatni og ötult starf Skógarskáta, sem grætt hafa mela og móa fögrum gróðri, og iðandi náttúra og fjörugt mannlíf laða nú til sín æ fleiri gesti á hverju ári. Í kjölfar alþjóðlegra skátamóta síðustu ára hefur öll aðstaða tekið miklum stakkaskiptum og aðbúnaður gesta er nú með því besta sem gerist hérlendis. Glæsileg tjaldsvæðin eru umlukin gróðri og húsakostur er góður.

Skátar leggja áherslu á að veita almenningi greiðan aðgang að þessari náttúruperlu með það að markmiði að gefa sem flestum tækifæri til að njóta staðarins og upplifa „undraland við Úlfljótsvatnið blátt" í Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni.  margir hafa gert þessa uppbyggingu staðarins mögulega með stuðningu.  Fyrst ber að nefna Reykjavíkurborg og Orkuveitu Reykjavíkur sem eru landeigendur og gerðu nýlega 75 ára leigusamning við skáta um aðstöðuna.  Ríkisvaldið hefur einnig stutt við uppbygginguna með árlegum fjárframlögum.  Þá hefur Pokasjóður verið sérlega öflugur stuðningsaðili við uppbygginguna síðustu ár.  Og reglulega fær staðurinn einhvern stuðning til uppbyggingarinnar og fjölmargir sjálfboðaliðar hafa lagt satðnum til starfskrafta sína og væri staðurinn ekki sá sem hann er í dag ef allra þessara aðila hefði ekki borið við og skal það þakkað.

Staðsetning Útilífsmiðstöðvarinnar að Úlfljótsvatni er einstök. Stuttur ferðatími frá höfuðborgarsvæðinu og nálægð við margar af mestu náttúruperlum landsins gerir svæðið að góðum valkosti til útivistar. Nesjavellir, Þingvellir, Laugavatn, Gullfoss og Geysir eru innan seilingar og athyglisverðar gönguleiðir sem umlykja svæðið. Stöðugt er verið að byggja upp, gróðursetja og betrumbæta.

Snyrtiaðstaða
Hreinlætis- og snyrtiaðstaða er öll til fyrirmyndar á svæðinu.  Á þjónustusvæðinu er nýlegt 8 sturtu sturtuhús sem er með heitu vatni og opið tjaldgestum.  Þá er fjöldinn allur af snyrtihúsum um svæðið með vatnssalernum og utanáliggjandi hreinlætisaðstöðu til að þvo upp mataráhöldin.  Það er því hægðarleikur einn að halda sér og fjölskyldunni hreinum og snyrtilegum jafnvel þó dvalið sé í tjöldum og börnin verða óhrein í ati dagsins.

Íþrótta- og leikjasvæði
Knattspyrnuvöllur, golfvöllur (1 km í burtu) og aðstaða fyrir körfuknattleik veitir íþróttafólkinu í fjölskyldunni góða útrás. Folfbraut er á staðnum sem er skemmtileg íþrótt sem allir geta stundað með frispídiskum.  Einnig hefur verið sett upp lítill minigolfbraut.  Þá hefur verið settur upp glænýr leikvöllur fyrir yngstu börnin en hann er sérstaklega styrktur af Pokasjóði.

Þrautabrautir fyrir alla
Unglingarnir njóta sín vel í kanóferðum svo ekki sé minnst á klifurturninn og þrautabrautirnar og yngra fólkið á auðvelt með að gleyma sér í vatnasafarí og við kassabílaakstur og að sjálfsögðu hafa þau aðgang að klifurvegg við sitt hæfi! Þá er bráðskemmtilegt vatnasafarí á staðnum þar sem eldri börnin og unglingarnir gösla í vatni og verða forug upp fyrir haus og veldur það alltaf miklum spenningi þó í íslensku veðri sé.

Sigling á vatninu
Mikil bátaeign er á staðnum og unnt að leigja báta til siglinga á vatninu.  Vinsælustu bátarnir í dag eru plast hjólabátar sem njóta einstakra vinsælda jafnt hjá börnum sem fullorðnum enda mjög skemmtilegir og öryggir bátar.

Varðeldur að hætti skáta
Ef fjölmennt er á svæðinu annast starfsfólk Útilífsmiðstöðvarinnar varðeld á laugardagskvöldum yfir sumartímann fyrir tjaldgesti. Þar er tilvalið fyrir gesti að safnast saman og taka lagið.  En þó skátarnir stýri ekki kvöldvöku er góð aðstaða fyrir ættarmótið að setja upp sína eigin kvöldvöku.

Veiði- og göngutúrar
Fyrir þá sem vilja kynnast vatninu betur er kjörið að fá bát á bátaleigunni og sigla um eða renna fyrir silung í vatninu.

Göngutúr um Álfastíginn er kjörinn endir á góðum degi en þar hafa Skógarskátar útbúið skemmtilegt svæði sem hefur að geyma mikinn fróðleik um flóru landsins.









Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is