FJÖLSKYLDUDAGUR Á ÚLFLJÓTSVATNI
Fyrirtækisins, starfsmannafélagsins eða bara...
Við getum tekið að okkur viðburðinn frá a til ö. Fáir eru reynslumeiri þegar kemur að viðburðastjórnun en skátar. Á Úlfljótsvatni er allt til alls, til að skapa hið fullkomna andrúmsloft til að gera fjölskyldudaginn ógleymanlegann.
Í fjölnotahúsi okkar, Strýtunni, geta 250 komið saman og matast. Ef hópurinn er stærri þá reka skátar tjaldaleigu sem getur útvegað tjöld fyrir nokkur hundruð manns til viðbótar. Við erum með nokkur stór útigrill þar sem hægt er að grilla 300 hamborgara samtímis. Einnig er á staðnum fullkomið eldhús þar sem ekkert mál er að framleiða hinar ljúfengustu máltíðir. Við útbúm nokkrar svona hátíðir á hverju ári - svo þetta er ekkert nýtt fyrir okkur.
Ef þið viljið sjá um veisluna sjálf þá er það heldur ekkert mál. Nú ef þið viljið að allir starfsmennirnir og fjölskyldur þeirra njóti dagsins (helgarinnar) til fulls, þá erum við skátar ávallt reiðubúnir og getum séð um allt umstangið fyrir ykkur.
Afþreyingar möguleikarnir á Úlfljótsvatni eru nær óþrjótandi og sífellt bætast við nýjar þrautir, leikir og tæki. Einnig erum við í góðu samstarfi við Skátaland sem leigir út hoppikastala og fleiri leiktæki.
Hafðu samband og fáðu tilboð í ógleymanlega upplifun. Ekkert verkefni er of lítið eða of stórt.