Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Verðskrá 
  English 

HÓPEFLI Á ÚLFLJÓTSVATNI

Hópeflisferðir - Hópefli - Hvataferðir - Allt eftir þínu höfði eða okkar

Í dag sækja fyrirtæki, stofnanir. skólar og félagasamtök mikið í "hópeflismeðferð" eða dgaskrá sem miðar að því að hrista saman hópinn, skapa samkennd innan hópsins, brjóta niður samskiptamúra sem myndast hafa í fyrirtækinu, þétta hópinn saman og efla samkenndina sem öllum einingum er svo nauðsynlegt.  Síðustu ár hefur virkað frábærlega að fara með hópinn í "hópeflismeðferð" og er þá leitað til aðila sem vanir eru að setja saman leiki sem hafa áðurnefnt að markmiði.  Dæmi eru um að stjórnir og ýmsir kjarnar fyrirtækja hafa farið í sérstakar hópeflisbúðir erlendis.  Þegar dagskrá þeirra er skoðuð hefur komið í ljós að flest sem þar hefur verið boðið upp á hefur verið í boði á Úlfljótsvatni í nokkur ár.  Það þarf því ekki að leita langt yfir skammt og ekki þarf að fljúga austur á Úlfljótsvatn.  Við bjóðum upp á hópeflisdagskrá - tilbúna eða tilsniða fyrir þinn hóp.  Þá er öll aðstaða á staðnum til að gera dagskrána fullkomna, gisting, mataraðstaða, aðstaða til fyrirlestra oþh.  Endilega hafið samband og skoðið möguleikana sem eru til staðar.

Dagskrárlengd: frá 2 klst. og lágmarksfjöldi 10 manns
Viðmiðunarverð: Fer eftir dagskránni og fjölda leiðbeinenda sem þörf er á hverju sinni sem eðlilega ræðst af fjölda þátttakenda og umfangi dagskrárinnar.  Verðið er frá kr.3.900.- pr. þátttakanda.  Gerum tilboð í pakkann.

Innifalið:
Í grunnverðinu er aðstaðan og nauðsynlegur búnaður, s.s. sig- og klifurtól, leiktæki, leikmunir og leikstjórnendur.

Dagskráinn er byggð upp á hugmyndafræði skáta þ.e. athafnanámi (Learning By Doing), en einnig er sótt í smiðju “Project Adventure, Inc.” (www.pa.org) í Bandaríkjunum, sem er leiðandi fyrirtæki á þessu sviði og hafa gefið út fjölda bóka sem eru nánast “biblíur” þeirra sem starfa á þessu sviði um allan heim og okkar menn hafa kynnt sér.

________________________________________________________________________________

Hópeflisdagskrá - nokkur dæmi um möguleikana á Úlfljótsvatni.

Viðfangsefni
Það fer eftir veðri og hversu langan tíma hópurinn áætlar að dvelja á Úlfljótsvatni, hvaða viðfangsefni verða fyrir valinu hverju sinni, að neðan eru nokkur dæmi. Hópurinn leysir viðfangsefnin, ýmist saman eða er skipt í 6 -10 manna hópa. Um er að ræða n.k. póstaleik og tekur hver póstur um það bil 20 – 30 mínútur.

Hristingur
Nokkrar léttar æfingar og leikir í byrjun til að hrista hópinn saman. Hvaða viðfangsefni verða fyrir valinu fer eftir því hversu vel hópurinn þekkist innbyrðis. Meðal viðfangsefna er Boxið, Nuddið, Klukk, Hoppið og Earthwinds (Jarðvindar).

The Trolley
Hér reynir á hvort hópurinn stefni að sama markmiði og sé á réttri leið. Erum við “samvinnumenn”. Hægt að hafa sem tímaþraut.

Towering-inferno:
Hér reynir á samtakamátt hópsins við óvæntar og “hrollvekjandi” aðstæður. Í þessarri raun verða leiðtogarnir til. Hvað á að gera? Hvernig og hvenær? Þetta er sambland af sigi og klifri. Þetta er nokkuð tíma frekur póstur og hentar illa ef um mjög stóra hópa er að ræða og tími er naumur.

Bio-Hazard
Hér reynir á frumkvæði einstaklingsins og útsjónarsemi hópsins?! Hægt að hafa sem tímaþraut.

TP shuffle:
Hér reynir á þolinmæði og “jafnvægi” einstaklingsins í hópnum við að leysa hópverkefni. Hægt að hafa sem tímaþraut.

Náðu bandinu
Hér er á ferðinni viðfangsefni sem leynir á sér, á stundum getur einstaklingur verið jafnoki hóps!!? Einnig kemur í ljós hvernig einföld hjálpartæki geta gert hvern og einn hæfari til að leysa viðfangsefni.

Björgunaræfingin
Hópurinn stendur frammi fyrir mikilli vá. Líf eru í húfi. Hvað skal gert? Er eitthvað hægt að gera? Hver tekur frumkvæðið á vettvangi og bjargar verðmætum lífum? Mun hópurinn standa saman eða gefast upp??? Hægt að hafa sem tímaþraut.

Mýrinn
Hópurinn er ferð og hindranir eru á veginum. Nokkur hjálpartæki eru til staðar og með réttri notkum er hægt að yfirvinna hindranirnar. Finnur hópurinn leið út úr ógöngunum eða leggur hann árar í bát? Hægt að hafa sem tímaþraut.

Að ná áttum
Er hópurinn áttavilltur?

Þrautabrautin á þurru
Hópurinn tekst á hendur ferðalag. Kemst hann klakklaust á áfangastað? Sjáum til! Hægt að hafa sem tímaþraut.

Blauta þrautabrautin
Sama og að ofan nema að þrautbrautinn er úti í vatni og mistök kosta blauta dýfu ( vissara að hafa föt til skiptana með ).

Klifurturninn
Er einhver lofthræddur? Er hópurinn til í að prófa eitthvað nýtt og treysta ókunnugum fyrir lífi sínu? Nú reynir á kjarkinn! Er í raun tveir póstar, bæði sig og klifur. Stærsti klifurturn landsins er á Úlfljótsvatni - 10 metra hár.

Hvalbakur
Um er að ræða þraut er reynir á jafnvægislist hópsins og samtakamátt! Hópurinn er staddur á “fleka” í ólgusjó, rangar hreyfingar leiða til hræðilegra örlaga! Hægt að hafa sem tímaþraut.

Kassaklifur
Einstaklingar úr hópnum spreyta sig á byggingarlist úr goskössum sem menn stafla hver ofan á annan meðan þeir eru tryggðir í öryggislínu.  Meðan þeir feta sig upp á við eru þeir hvattir áfram af félögum sínum úr hópnum. Hversu hátt getur hópurinn byggt og hve lengi er hann að því?

Stiklur:Hópurinn kemur að faratálma sem komast þarf yfir á sem skemmstum tíma og hefur aðeins örfá hjálpartól. Komast þau – finna þau lausnina! Hægt að hafa sem tímaþraut.

Kappsigling
Róðrakeppni á kanóum eftir baujubraut. ( mjög veðurháð !)

Chuck-A-Hunk ( “Björgum kisu”)
Sjón er sögu ríkari. Hópurinn kemur að ófæru og kattarvinurinn kemur upp í öllum, því bjarga þarf “kisu” frá “drukknun”. Reynir á áræðni og hudmyndaflug hópsins.









Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is