ÆTTARMÓT Á ÚLFLJÓTSVATNI
Það færist sífellt í vöxt að halda ættarmót að Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni. Miðstöðin er í heppilegri fjarlægð frá stór-höfuðborgarsvæðinu þaðan sem margir þátttakendur koma. Þá er öll aðstaða hreint frábær og má fullyrða að fjölbreyttara og betra tjaldsvæði sé vart að finna í landinu. Unnt er að leigja fjölnotahús staðarins “Strýtuna” sem tekur yfir 250 manns í sæti annað hvort dagshluta eða kvöldstund eða alla helgina ef svo býr við. Þannig geta gestir gist í tjöldum og haldið sýningar, kvöldvökur, sameiginlegar kvöldmáltíðir og tryggt að helgin verður ekki ónýt þó íslenskt veðurfar bregðist. Á hverju tjaldsvæði eru stór útigrill svo aðeins þarf að hafa meðferðis grillkol og djúsi steikur eða hamborgara.
Boðið er upp á að útbúa sérstaka dagskrá fyrir minni eða stærri hópa, hvort sem er að degi eða kvöldi og annast framkvæmd hennar ef vill. Í boði eru grillveislur fyrir allt að 500 manns. Flestar sumarhelgarnar er einn eða fleiri hópar á svæðinu og nóg pláss fyrir nokkur ættarmót á svæðinu sömu helgina.
Góð aðstaða er fyrir tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi eða ferðabíla. Þá er öll snyrtiaðstaða hin ákjósanlegasta með heitum sturtum í sturtuhúsi, salernum og þvottaaðstöðu á hverri tjaldflöt. Hvað þarf meira?
Afþreyingar möguleikarnir á Úlfljótsvatni eru nær óþrjótandi og sífellt bætast við nýjar þrautir, leikir og tæki. Þarna er leikaðstaða fyrir alla aldurshópa allt frá nýjum leikvelli fyrir yngstu börnin upp í klifur í stærsta klifurturni landsins - 10 metra hár. Einnig getum við haft milligöngu um leigu á stórum samkomutjöldum, borðum og bekkjum frá Tjaldaleigu skáta (www.skatar.is) eða hoppikastala og leiktæki frá Skátalandi (skataland@skatar.is).
Hafðu samband og fáðu tilboð í ógleymanlega upplifun ulfljotsvatn@skatar.is eða í síma 550-9800 á skrifstofutíma á virkum dögum kl. 9-17. Ekkert verkefni er of lítið eða of stórt.