Forsíða 
  Um útilífsmiðstöðina 
  Sumarbúðir 
  Skólabúðir 
  Tjaldsvæði 
  Fjölskyldudagur 
  Hópefli 
  Ættarmót 
  Óvissuferðir 
  Afþreying 
  Bátar 
  Folf 
  Frumbyggjastörf 
  Gönguferðir 
  Í nágrenninu 
  Kappleikir 
  Klifurturn 
  Leiktæki 
  Varðeldur 
  Vatnsbyssuhasar 
  Veiði 
  Þrautabrautir 
  Verðskrá 
  English 

BÁTALEIGA OG SIGLINGAR Á ÚLFLJÓTSVATNI

Gestum okkar á tjaldsvæðunum sem dagsgestum býðst að leigja hjá okkur báta til siglinga á vatninu.  Hafa þarf samband við starfsmenn staðarins til að ganga frá leigu.  Staðurinn hefur komið sér upp talsverðum b´´ataflota sem stendur gestum til boða og fer hér á eftir lýsinga á bátunum sem eru í boði.

Hjólabátar
Öll fjölskydan getur sameinast um hjólabátog siglt um Úlfljótsvatn. Bátar þessir eru mjög öruggir, en samt er ávallt starfsmaður á vakt þegar bátaleigan er opin. Þessir bátar eru í dag vinsælustu bátarnir á staðnum jafnt hjá börnum sem fullorðnum.

Kanóar
Hægt er að leigja kanóa og sigla á Úlfljótsvatni gegn vægu gjaldi. Fyllsta öryggis er gætt og er ávallt starfsmaður Útilífsmiðstöðvarinnar á vakt á meðan bátaleigan er opin. Krakkarnir í sumarbúðunum fá kennslu í undistöðuatriðum í meðferð kanóa og er dagskrárliðurinn kyrjað á kanó, þar sem róið er út í Flatey og numið land, einn vinsælast dagskrárliðurinn.

Kajakar
Útilífsmiðstöðin á kajaka sem eru notaðir við ýmis tækifæri.

Seglbátar
Seglbátarnir eru nýjasta viðbótin í bátaflota Útilífsmiðstöðvarinnar. Hægt er að leigja seglbát og sigla á Úlfljótsvatni gegn vægu gjaldi. Fyllsta öryggis er gætt og er ávallt starfsmaður Útilífsmiðstöðvarinnar á vakt á meðan bátaleigan er opin.









Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni - Hraunbæ 123 - 110 Reykjavík - sími: 5509800 - kennitala: 420278-0209, 0513-26-601955 - ulfljotsvatn@skatar.is