Velkomin á heimasíðu Útilífsskóla skáta.
Um árabil hafa skátafélögin í Reykjavík rekið sumarnámskeið undir nafninu Útilífsskólar skáta í samstarfi við Íþrótta-og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR). Námskeiðin eru rekin af skátafélögunum og fá þeir sem taka þátt kynningar aðild að félögum. Hér er að finna upplýsingar um útilífsskóla í Reykjavík og í nágranna sveitarfélögunum.
Útilífsskólar skáta eru fyrir alla krakka á aldrinum 8 til 12 ára.
Í sumar er boðið upp á nýjung í Breiðholti, Sólheimum og Grafarvogi en sérstakt unglinganámskeið fyrir 13 -16 ára verðu í ágúst. Einnig verður boðið upp á grallaranámskeið fyrir yngri í Grafarvogi í júlí.
Í sumar verða Útilífsskólar skáta á 12 stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Árbæ, Álftanesi, Breiðholti, Bústaðahverfi, Garðabæ, Grafarvogi, Grafarholti, Hafnafirði, Hlíðum, Kópavogi,Mosfellsbæ og Sólheimahverfi.
Opnað verður fyrir skráningu fyrir Útilífsnámskeiðin 2012 á sumardaginn fyrsta 19. apríl n.k.
Það er hægt að velja hverfi hér vinstramegin á síðunni og þar finnur þú allar upplýsingar um námskeiðin í hverju hverfi. Þar er síðan skráningatengill yfir á skráningarsíðu hvers hverfis.
Ef þið þurfið aðstoð með skráningu, þá er hægt að samband beint við hvert félag. Upplýsingar um símanúmer er á svæði hvers félags. Einnig er hægt að fá aðstoð hjá skrifstofu Skátasambands Reykjavíkur í síma 5509800.

